21.11.2021 08:02

Húnakaffi

Það var fin mæting i húnakaffið i gær mikið spjallað og haft gaman hvet alla velunnar Húna EA á mæta i kaffi sem að

er á Laugardagsmorgnum frá kl 10 -12 og spjalla um gömlu timana  látum myndirna tala 

                                    Hópurinn samankominn mynd þorgeir Baldursson 20 nóvember 2021

                                Gamlar bátamyndir skoðaðar mynd þorgeir Balduursson 20 nóvember 2021

                                              Málin Rædd mynd þorgeir Baldursson 20 nóvember 2021 
                                               þjóðMálin krufin mynd þorgeir Baldursson 2021

19.11.2021 21:33

Baldvin NC 100 á siglingu við Hjalteyri

                         Baldvin NC 100 ex Baldvin Þorsteinsson EA 10 mynd þorgeir Baldursson 29-7 -2014

                                       Baldvin Nc 100 á siglingu við Hjalteyri 29 -7 -2014 mynd þorgeir Baldursson 

19.11.2021 17:46

Fiskihöfnin á Akureyri i Dag

         Oddeyrin EA Hólmasól Farþegabátur mjölnir Hafnsögubátur og Anna Ea Linubátur myndir Þorgeir 

                      Frosti ÞH229 Arnar HU 1 OG Hrafn Sveinbjarnarson Gk 225 mynd þorgeir Baldursson 

                  Sighvatur Bjarnasson VE Hafborg EA Frosti þH Arnar HU Mynd þorgeir Baldursson 

 

19.11.2021 14:11

Húni EA kominn með Jólaseriu

                            108 Húni 11 EA 740 kominn i Jólabúning mynd þorgeir Baldursson 2021

                                                 108 Húni EA108 segl og reiði mynd þorgeir Baldursson 2021

               Upplýsingar um skipið mynd þorgeir Baldursson 2021

                                               Neyðarplan fyrir Húna EA 108 mynd þorgeir Baldursson 2021

19.11.2021 07:56

Björgúlfur EA 312 i Hriðarmuggu

                         2892 Björgúlfur EA312 á Útleið frá Akureyri Mynd þorgeir Baldursson 

18.11.2021 00:03

Clipperton GG 229

           Sænska uppsjávarveiðiskipið Clipperton GG 229 á siglingu á Eyjafirði i morgun mynd þorgeir Baldursson 

17.11.2021 23:56

Isafold HG 333 á Eyjafirði i morgun

         Danska Uppsjávarveiðiskipið Isafold HG 333 á siglingu á Eyjafirði i morgun Mynd þorgeir Baldursson 

16.11.2021 13:56

Mikil umsvif hjá Slippnum Akureyri

Mikil umsvif hafa verið hjá Slippnum á Akureyri núna seinnipartinn af árinu fjöldi skipa hefur verið i breytingum 

bæði verið að skipta út vinnslulinum i Frosta ÞH og siðan var verið að skipta um Kælimiðla i Arnari HU og 

Hrafni Sveinbjarnarssyni GK siðan kom Sighvatur Bjarnasson VE i skoðun fyrir komandi Loðnuvertið 

og siðst eru tveir færeyskir togbátar sem að koma til með að fá nýtt millidekk en á þessari stundu er ekki vitað

hvenar verður hafist handa við það verkefni sinan er slippurinn með mörg smærri verk i vinnslu 

                              Athafnasvæði slippsins i morgun Mynd þorgeir Baldursson 16 nóv 2021

                            2281 Sighvatur Bjarnasson ve 81 i morgun mynd þorgeir Baldursson 16 nóvember 2021

15.11.2021 14:33

ICEFISH-RÁÐSTEFNAN - ÖLL Á VEFNUM

       264 Þórður Jónasson EA 350 á Loðnuveiðum Mynd Valgeir Baldursson 

Vegna aðstæðna sem enginn hafði stjórn á þurfti að fresta Íslensku sjávarútvegsráðstefnunni, en nú í ár geta bæði sýnendur og gestir geta tekið þátt í IceFish Connect á netinu. Þar verður að finna, aðgengilegt á netinu, allt það sem venjulega er á Íslensku sjávarútvegsráðstefnunni.

Þar á meðal er ríkuleg dagskrá IceFish Connect ráðstefnunnar ásamt málstofum fullvinnsluráðstefnunnar Fish Waste for Profit, auk þess sem tækifæri gefast til að efna til funda og fylgjast með kynningum í rauntíma.

„Þetta er í fyrsta sinn sem við erum með IceFish á netinu, og í framtíðinni munum við halda hana þannig samhliða viðburðum á staðnum. Þetta verður gert þannig frá og með Íslensku sjávarútvegsráðstefnunni 2022, “ segir Marianna Rasmussen-Coulling viðburðastjóri.

„Mikil vinna hefur farið í að setja saman réttu efnisatriðin til þess að tryggja að IceFish Connect dragi að sér bæði réttu frummælendurna og raunverulega áhugasama áheyrendur.“

Allir gestir á IceFish Connect verða skráðir og snjallkerfi greinir hvern gest til að geta parað hann við framleiðendur og þjónustuveitendur sem hafa eitthvað að bjóða sem fellur að kröfum hans. Þannig er séð til þess að gestirnir geti nýtt sér eftir bestu getu þau tækifæri sem skapast á IceFish Connect.

„Þetta er ekki sami viðburðurinn og ráðstefnan sem gerði fólki kleift að hittast augliti til auglitis, en í grundvallaratriðum er hann þó eins og allir aðrir viðburðir í viðskiptalífinu. Þótt ekki verði hægt að hittast af hendingu á göngunum, þá parar ráðstefnan saman fólk út frá þeim áhugaefnum sem skráð voru fram í upphafi. Þetta hjálpar fólki að ná til annarra þegar kröfurnar smella saman, ” segir hún.

„Þannig að þið getið hist, myndað sambönd og rætt það sem mestu máli skiptir fyrir ykkur og fyrirtækin ykkar, rétt eins og þið gætuð gert með því að hittast augliti til auglitis.”

Gestir fá í hendurnar ítarlega dagskrá netráðstefnunnar, þar sem sérfærðingar hafa framsögu og pallborðsumræður verða á hverri málstofu. Þetta er viðbót við aðaldagskrá IceFish Connect með viðburðum og kynningum."

„Þetta er annað árið í röð sem takmarkanir vegna Covid koma í veg fyrir að fólk geti hist augliti til auglitis, þrátt fyrir að sjávarútvegs-, fiskeldis- og sjávarfangsgeirarnir séu afar úrræðagóðir og fljótir að laga sig að nýju vinnuumhverfi. IceFish Connect er okkar framlag til þess að auðvelda fólki í fiskveiðum, vinnslu og sjávarfangsfyrirtækjum að vera í tengslum hvert við annað og ráði yfir nýjustu þekkingu – og við munum snúa aftur árið 2022, bæði með aðra IceFish Connect netráðstefnu og Íslensku sjávarútvegssýninguna sem átti að hafa orðið að veruleika fyrir löngu í raunheimum,” segir Marianne Rasmussen-Coulling.

Fylgist með okkur á TwitterFacebook og LinkedIn

Einnig er hægt að hafa samband í síma +44 1329 825335 eða sent tölvupóst á netfangið info@icefish.is

 

15.11.2021 08:04

Uppsjávarveiðiskip leita hafnar vegna Brælu

Mikil veðurhæð og leiðinlegt veður undanfarna daga hefur sett strik i loðnuleit 

en vonadi lagst þetta fljótlega 

 

                                     2983 Vilhelm Þorsteinsson  Ea 11mynd Jón Páll Ásgeirsson 2021

                                               2885 Hoffell su 80 mynd Jón Páll Ásgeirsson 2021

                                              3015 Svanur RE45  Mynd jón Páll Ásgeirsson 2021

                                    Ernir EX Guðmundur Ve 29  Mynd Jón Páll Ásgeirsson 2021

                                  Clipperton GG 229 á Akureyri Mynd þorgeir Baldursson 2021

                                      Isafold HG 333 á Akureyri Mynd þorgeir Baldursson 2021
 

14.11.2021 22:21

Arnór Sigurðsson is 200

                              6999 Arnór Sigurðsson is 200 mynd þorgeir Baldursson 

14.11.2021 10:16

Sighvatur Bjarnasson ve 81

                                      2281 Sighvatur Bjarnasson VE81 mynd þorgeir Baldursson 

Samkvæmt áreiðanlegum heimildum mun Sighvatur verða Þykktarmældur og ef að það verður i lagi mun hann verða

skveraður af  fyrir komandi loðnuvertið en skipið hefur legið við bryggju i vestmannaeyjum undanfarin ár 

    en vonandi verður hægt að laga það og skipið komist i drift áður en langt um liður 

14.11.2021 08:55

Skip sem hafa reynst afar vel

                 Kaldbakur EA1 Björgúlfur EA og Björg EA á Siglingu á Pollinum Mynd Skapti Hallgrimsson 
                                                               2894 Björg EA 7 Mynd þorgeir Baldursson 
 

                                                 

                                             2892 Björgúlfur EA312 mynd þorgeir Baldursson 

                                              2891 Kaldbakur EA1 mynd þorgeir Baldursson 

                             Kælisniglar settir um borð i Kaldbak EA 1 mynd þorgeir Baldursson 

                                                     2893 Drangey SK 2 mynd þorgeir Baldursson 

Fjögur ár eru síðan Björg EA kom til heimahafnar í fyrsta sinn. Þrjú systurskip fylgdu stuttu síðar og hafa öll reynst afar vel.

 

Fjögur ár eru síðan togari Samherja - Björg EA 7 - kom til Akureyrar í fyrsta sinn. Skipið var smíðað í Cemre-skipasmíðastöðinni í Tyrklandi og var síðasta skipið af fjórum systurskipum, Samherji lét smíða þrjú og FISK-Seafood á Sauðárkróki eitt.

Af þessu tilefni er fjallað um skipin á heimasíðu Samherja og fer sú frásögn hér á eftir.

Systurskip Bjargar eru Björgúlfur EA 312, Kaldbakur EA 1 og Drangey SK 2. Þessi skip vöktu strax athygli og umtal, ekki síst vegna þess að stefni þeirra þóttu framúrstefnuleg.

„Þessi skip okkar hafa reynst mjög vel, þau fara vel með áhöfn, eru vel búin og eru á margan hátt hagkvæmari í rekstri en önnur fiskiskip. Ástæðan er fyrst og fremst skrokklagið og stefni skipanna sem kljúfa öldurnar vel. Sem dæmi get ég nefnt að þurrkurnar á brúargluggunum eru sjaldnar í gangi en gengur og gerist, einfaldlega vegna þess að skipin kljúfa öldurnar vel og halda þess vegna betur ferð í brælum, sem þýðir meðal annars minni olíunotkun. Hönnunin á skrokknum þótti nýlunda og talsvert frábrugðin eldri skipum íslenska flotans,“ segir Kristján Vilhelmsson framkvæmdastóri útgerðarsviðs Samherja.

Fremur lítil vél, stór skrúfa

Slippurinn á Akureyri sá um að setja aðgerðar- og kælibúnað um borð í skipin, enda hefur Samherji í gegnum tíðina kappkostað að notast við íslenskar lausnir og framleiðslu.

Andveltitankur er í hverju skipi, slíkur tankur gerir það að verkum að verulega dregur úr veltingi, vinnuaðstæður eru betri og áhafnir hvílast betur á frívöktum. Aðalvélin þykir fremur lítil miðað við önnur íslensk fiskiskip en Kristján bendir á að skrúfan sé stór, afl vélarinnar nýtist því vel.

Algjör bylting

Guðmundur Freyr Guðmundsson hefur verið skipstjóri á Björgu frá upphafi. Þegar haft var samband við Guðmund var Björg að veiðum á Sléttugrunni.

„Já ég segi hiklaust að smíði þessara skipa hafi verið bylting, þökk sé góðri hönnun. Við finnum varla fyrir brælu, skipið er allt mýkra og þægilegra, munurinn er hreint út sagt ótrúlegur. Stöðugleiki hefur svo mikið að segja fyrir áhöfnina á allan hátt. Í upphafi var eitthvað verið að efast um að aðalvélin væri ekki nógu öflug en með stórri skrúfu og vel úthugsuðu skrokklagi er krafturinn nægur. Ég er toppánægður með þetta skip og þessi fjögur ár hafa verið fljót að líða,“ segir Guðmundur.

Vandað til verka

„Jú, jú, það voru eðlilega miklar vangaveltur hjá okkur við hönnun skipanna og það þarf líka ákveðinn kjark til þess að brjótast úr viðjum vanans. Skipin voru hönnuð af verkfræðistofunni Skipatækni og Bárði Hafsteinssyni sem hefur langa og mikla reynslu í þessum efnum. Hérna innandyra hjá Samherja er líka mikil þekking, sem kom sér vel í öllum undirbúningi. Eftir prófanir í módeltanki í Gdansk í Póllandi var ákveðið að breyta stefninu örlítið og aðeins var tekið úr skrokknum. Við sem sagt reyndum eftir bestu getu að vanda vel til allra þátta og niðurstaðan eftir þessi fjögur ár er jákvæð í alla staði. Svo er skemmtilegt að skoða skip fyrri alda og sjá skrokklagið, til dæmis Gauksstaðaskipið, sem er stærsta víkingaskip sem varðveist hefur frá víkingatímanum. Talið er að það skip hafi verið smíðað um 850, þannig að það er í raun og veru fátt nýtt undir sólinni, ef út í það er farið,“ segir Kristján Vilhelmsson.“

 

 

14.11.2021 08:32

Hafnarey Su

                 Hafnarey Er einhver sem að veit meira um þetta skip  mynd af af Marine Traffic.com 

 

Ship Type

Fishing

Length × Breadth

28.91 X 6.8

Speed recorded (Max / Average)

8,00 / 6,60 knots

Flag

Russia (RU) 

Call Sign

UCFW

13.11.2021 21:45

Clipperton GG 229

                                 Clipperton GG 229 á Akureyri i dag mynd þorgeir Baldursson 2021

 

CLIPPERTON (IMO: 9816775) is a Fishing Vessel that was built in 2018 (3 years ago) and is sailing under the flag of Sweden.

It’s carrying capacity is 1750 t DWT and her current draught is reported to be 7.3 meters. Her length overall (LOA) is 63 meters and her width is 12.9 meters.

Vessel Information

General

IMO: 9816775

Name: CLIPPERTON

Vessel Type - Generic: Fishing

Vessel Type - Detailed: Fishing Vessel

Status: Active

MMSI: 266460000

Call Sign: SBCR

Flag: Sweden [SE]

Gross Tonnage: 1568

Summer DWT: 1750 t

Length Overall x Breadth Extreme: 63 x 12.9 m

Year Built: 2018

 

Eldra efni

Um mig

Nafn:

Þorgeir Baldursson

Farsími:

8620479

Heimilisfang:

Reynihlið 15 D 604 Hörgárbyggð

Staðsetning:

Hörgárbyggð

Um:

Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist Sjávarútvegi

Tenglar

Flettingar í dag: 1122
Gestir í dag: 18
Flettingar í gær: 1858
Gestir í gær: 51
Samtals flettingar: 1062396
Samtals gestir: 50972
Tölur uppfærðar: 22.12.2024 07:24:22
www.mbl.is